
Hugtak býður upp á víðtæka þjónustu á sviði mannauðsmála, allt frá því að afla umsókna yfir í heildstæð ráðningaferli. Einnig bjóðum við upp á ráðgjöf til eflingar starfsmanna, frammistöðumælinga, vinnustaðagreininga, ofl.
Ráðningarferli Hugtaks hentar vel þegar ráða skal í ábyrgðarmeiri stöður. Við bjóðum upp á persónuleika – og hæfnismat, vinnusýni og viðtöl ásamt mati á ferilskrám og meðmælum. Við notum aðferðir sem sýna besta forspá og hafa sannað gildi sitt í gegnum tíðina.
Við bjóðum einnig upp á fjölbreytt úrval lausna í mannauðsráðgjöf:
|
Frammistöðumat |
Árangursmælingar |
Starfsmannahandbækur |
|
Hvatakerfi |
Vinnustaðagreining |
Sálfræðiráðgjöf |
|
Fyrirtækjagreining |
Stefnumótun |
Vinnusmiðjur |
|
Starfslok |
Samrunar |
Ráðgjafi til leigu |
|
Heilsuefling |
Öryggishegðun |
Umsjón umsókna og fyrirspurna |