Hagstofan sendi frá sér skýrslu í dag sem segir okkur frá því að 95% Íslendinga á aldrinum 16-74 ára notuðu internetið allavega einu sinni fyrstu 4 mánuði ársins 2011.
Af þessum “netnotendum” nota svo 93% netið á hverjum degi og önnur 6% að minnsta kosti einu sinni í viku. Heildartalan er semsagt sú að 94% Íslendinga nota internetið reglulega. Við erum ein netvæddasta þjóð í heimi og skríðum frekar stöðugt í áttina að 100% netnotkun.
26% aðspurðra nota símann sinn til þess að fara á netið.
Þú getur lesið alla skýrsluna hér: https://hagstofa.is/lisalib/getfile.aspx?ItemID=12638
Tækni- og netvæðingin hefur nú þegar gjörbreytt því hvernig við stundum viðskipti og þetta umhverfi kemur til með að halda áfram að stökkbreytast á næstu árum.
Ég var 4 eða 5 ára þegar ég settist fyrir framan PC tölvu og spilaði Space Invaders í fyrsta skipti og ég verð þrítugur á næsta ári! Í dag er það að kunna á tölvu og að nota internetið svipað og það að kunna að lesa. Ef þú kannt það ekki (eða kannt það en nýtir þér það ekki) þá verður þú líklegast eftir á á einhverjum sviðum.
Með því að nýta þau gríðarlega öflugu og sniðugu verkfæri sem eru í boði á netinu get ég unnið hvaðan sem er. Ef tölvan mín hrynur þá þarf ég bara að komast í aðra tölvu með nettengingu og ég get haldið áfram með daginn.
Ert þú ekki örugglega að nýta þér internetið til fulls?