Category Archives: Atvinnuleit

Að skrifa ferilskrá

Ferilskráin – skiptir hún máli?

Svarið er einfalt. Já, ferilskráin þín skiptir öllu máli. Ferilskráin þín eru þær upplýsingar sem atvinnuleitendur skoða ítarlegast þegar þú sækir um vinnu. Þess vegna skiptir öllu máli að vanda til verka þegar ferilskráin er skrifuð.

Þegar þú skráir þig á Atvinna.is getur þú sett upp ferilskrána þína og einnig hengt hana sem skjal í viðhengi. Við mælum endregið með því að þú gerir þetta þar sem þetta eykur möguleika þína í ráðningarferlinu og gerir þig sjáanlega/n þeim atvinnurekendum sem leita að starfsfólki á síðunni okkar. Við gerum okkur grein fyrir því að það getur verið leiðinlegt að þurfa að fylla í reiti með upplýsingum sem eru kannski þegar til staðar í ferilskránni en staðlað form eins og þetta auðveldar atvinnuveitendum að sía í gegnum þær hundruðir ferilskráa sem þeir skoða.

Ferilskráin þín á að vera hnitmiðuð samantekt á því sem þú hefur tekið þér fyrir hendur í starfi og námi að ógleymdum öðrum hæfileikum, svosem tungumálum og tölvukunnáttu.

Ferilskráin þín á EKKI að vera ævisagan þín eða söluræða um kosti þína og gallaleysi. Þannig upplýsingar eiga betur heima í kynningarbréfi eða starfsviðtali þó að við vörum eindregið við því að fara of geyst í ævisöguna :)

Það sem þarf að koma fram á ferilskránni þinni er:

Persónulegar upplýsingar

Fullt nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer og kennitala.

Starfsreynsla

Upptalning og hnitmiðuð lýsing á þeim störfum sem þú hefur unnið, fyrirtækjunum sem þú vannst hjá og tímabilið sem unnið var á. Nýjasta starfsreynslan þín skal alltaf vera listuð efst og svo koll af kolli.

Menntun

Hér skal taka fram í tímaröð, nýlegasta menntun efst og svo koll af kolli, þá menntun sem þú hefur hlotið. Í þennan hluta ferilskráarinnar getur þú sett öll stig menntunar svo og ýmis námskeið eða réttindi sem þú hefur hlotið.

Önnur kunnátta / Styrkleikar

Hér má taka fram tungumálakunnáttu, tölvukunnáttu eða annað tilheyrandi sem þú telur að geti gert þig að hæfari starfskrafti.

Áhugamál og félagsstörf

Margir kjósa að setja inn áhugamál, félagastörf eða persónuleg markmið. Hugsaðu þig vel um og settu aðeins inn þá hluti sem gætu nýst þér í starfi eða lýsa persónulegum eiginleikum sem heillað gætu atvinnurekendur.

Meðmælendur

Hér er gott að lista 1-3 meðmælendur/fyrrverandi yfirmenn eða samstarfsmenn ef þú getur. Mundu bara að láta viðkomandi vita fyrirfram að hann/hún sé listaður sem meðmælandi á ferilskránni þinni og fá samþykki fyrir því.

 

Vandaðu þig! Þetta er fyrsta kynningin sem atvinnuveitandinn hefur af þér og því er nauðsynlegt að vanda stafsetningu, uppsetningu og málfar. Gott er að láta vin eða ættingja lesa yfir því eins og við vitum sjá augu betur en auga :)

Einnig er mikilvægt að kunna ferilskrána sína utan að og geta auðveldlega svarað þeim spurningum sem kunna að spretta frá ferilskránni í atvinnuviðtali.

Segðu satt. Það er ekki vænlegt að ýkja eða skrökva á ferilskránni og það kemst yfirleitt upp að lokum. En þú græðir heldur ekki neitt á því að tala þig niður! Gerðu þér grein fyrir mikilvægi þeirra starfa sem þú hefur unnið. Atvinnurekendur kunna að meta það að þú skiljir mikilvægi starfs  þíns hvort sem þú hefur unnið við afgreiðslu í sjoppu, við barnapössun eða sem bankastjóri!