Merkileg grein sem birtist nýlega á Wall Street Journal segir frá rannsókn sem gerð var á áhrifum þess að “hangsa á internetinu” á vinnutíma.
Þáttakendum var skipt niður í þrjá hópa sem fengu fyrst allir það verkefni að eyða 20 mínútum í að finna og yfirstrika stafinn E eins oft og þau gátu í ákveðnum texta.
Annað verkefnið var svo mismunandi fyrir hvern hóp. Næstu 10 mínútum var skipt svona:
- Hóp 1 var gefið annað einfalt verkefni
- Hópur 2 máttu gera það sem þau vildu, fyrir utan það að vafra á netinu
- Hópur 3 máttu vafra á netinu að vild
- Að lokum eyddu allir þrír hóparnir 10 mínútum í að yfirstrika stafi aftur.
Niðurstöðurnar voru þær að hópur 3, sem mátti nota internetið að vild, sýndi mun betri frammistöðu í að leysa verkefnin með meiri framleiðni og nákvæmni. Sami hópur sýndi einnig minni andlega þreytu, leiða og meiri þáttökuvilja en hinir hóparnir.
Þetta próf var gert tvisvar, annarsvegar á 96 nemum í stjórnun og hinsvegar á 191 fullorðnum einstaklingum og báðir hóparnir sýndu sömu niðurstöður.
Kenningin er sú að þegar fólk vafrar á netinu er það að gera það sem það vill og lesa það sem það hefur áhuga á. Þetta gerir það að verkum að hléð verður mun ánægjulegra heldur en ef því er eytt í að svara tölvupósti eða fara inn á kaffistofu og heyra enn eina söguna um golf/veiðiferðir/[v]ælandi börn/Icesave/ / / (fyllið í eyðurnar með hverju því sem þið teljið vera hryllingssögur!).
Í ljósi þessarar niðurstöðu leggja rannsakendurnir til að fyrirtæki leyfi starfsfólki sínu að eyða einhverjum tíma í að vafra um þær síður eða samfélagsmiðla sem það vill og einbeiti sér þá frekar að því að takmarka notkun einkapóstsins þar sem hann er líklegri til þess að hafa neikvæð áhrif á framleiðni á vinnustaðnum.
Við hjá Atvinna mælum þó auðvitað með því að fólk fari ekki of langt með þetta, við erum bara að tala um stutt hlé gott fólk! Hefur þú unnið á vinnustað sem reynir að takmarka internetnotkun? Hvernig var starfsandinn almennt og hver var þín reynsla?